tóma rýmið er listamannarekið sviðslistarými sem hefur það að markmiði að hýsa sjálfstætt starfandi sviðslistafólk í Reykjavík. Rýmið er það eina sinnar tegundar í Reykjavík og er alfarið rekið í sjálfboðastarfi.

Auk þess að vera vinnustofa 25 sviðshöfunda, leikstjóra, dansara, leikara og handritshöfunda, býður rýmið á regluleg tilraunakvöld og stendur fyrir sýningum og sviðslistahátíðum.

Gerast styrktaraðili

Með því að styrkja tóma rýmið stuðlar þú að því að grasrótarsviðslistir í Reykjavík eigi ekki aðeins auðveldara með að lifa af, heldur blómstri.

Hægt er að gerast mánaðarlegur styrktaraðili tóma rýmisins HÉR.